Um Sony Center
Hugmyndin
Hugmyndin að baki Sony Center búðunum er að skapa opinn og spennandi heim, þar sem þú getur upplifað mikið úrval af Sony-vörum.
Láttu töfrana hrífa þig með og upplifðu hina mörgu skapandi möguleika. Njóttu hljóð og myndupplifunar - upplifunar, sem gefur forsmekkinn af fleiri góðum upplifunum. Bæði í versluninni og heima við.
Hljóð og mynd upplifun
Í Sony Center viljum við veita þér innblástur til að skapa. Til að kanna og gefa þínum hugmyndum tækifæri. Hönnunin og andinn í Sonu Center verslunum endurspegla hvernig hægt er að nota Sony vörurnar - við hvert augnablik, hverja upplifun, sköpunargleðin og félagsskapur eru í brennidepli.
Ráðleggingar á mannamáli
Í Sony Center hittir þú sérfræðinga, sem tala þitt tungumál. Hvort sem það er tæknin, sem heillar þig, eða upplifanirnar sem þú setur í fókus, þá getur þú fengið þau ráð sem þú óskar eftir.
Þú getur jafnvel pantað þér þinn eigin ráðgjafa, svo þið getið saman farið yfir þær lausnir, sem þér henta, í ró og næði.
Forsagan
Sony Center verslanir eru að finna víðast hvar í heiminum í dag. Hugmyndin að þessum sérverslunum kom upp fyrir yfir tuttugu árum í Englandi. Og hið sérstaka Norðurlanda og Baltic yfirbragð leit dagsins ljós árið 1995, með opnun fyrstu Sony Center verslunarinnar í Tallin. Konseptið er í þróun dag frá degi og á hverju ári opna nýjar Sony Center verslanir á Norðurlöndum og á Balticsvæðinu. Í dag eru verslanirnar 29 talsins. Og það stendur til að opna mun fleiri.